Nálar og heilsa er flutt á Suðurlandsbraut 32
Nálar og heilsa hefur nú flutt stofuna sína á Suðurlandsbraut 32, 4. hæð í Reykjavík. Stofan er innst á ganginum til vinstri. Gengið er inn á 4. hæðina úr lyftunni, síðan áfram til vinstri inn ganginn.
Nálastungumeðferð getur hjálpað að koma fæðingu af stað
Í október fæddist hraustur strákur í fjölskylduna. Þegar meðgangan var komin eina og hálfa viku fram yfir settan fæðingardag var ákveðið að nota nálastungumeðferð til að hjálpa til. Eftir rúman sólarhring voru komnir vægir samdráttaverkir og var barnið komið í heiminn rúmum sex klukkustundum seinna.
