Árni Vignir Mathiesen Pálmason Árni hefur síðustu þrjátíu ár lært ýmsar óhefðbundnar heilsumeðferðir. Þær helstu má nefna kínverska læknisfræði og nálastungur, ýmsar tegundir af heilun og höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð. Árni hefur verið skráður græðari hjá Bandalagi íslenskra græðara síðan 4. maí 2007.
Nám Árna í kínverskri læknisfræði og nálastungum er eitt ár í Bretlandi og þrjú ár í Skóla hinna fjögurra árstíða. Þessu til viðbótar hefur Árni lagt stund á nálastunguaðferð sem kennd er við Master Tung sem þekktastur er fyrir að hafa starfað á Tævan.
Árni er Reiki meistari og hefur auk þess lært Kristalheilun hjá Collin Kingshot, Theta heilun I og II hjá Vianna Stibal, Angelic Reiki hjá Christine Core í Bretlandi og Marconics I-IV í Bandaríkjunum. Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð var lærð hjá Upledger á Íslandi og hefur Árni lokið CER-2 gráðu ásamt því að hafa þekkingu og reynslu af að vinna meðferðina í vatni.
Lára Kristín Björgúlfsdóttir Lára lærði nálastungur í Skóla hinna fjögurra árstíða. Einnig hefur hún lagt stund á nálastunguaðferð sem kennd er við Master Tung sem þekktastur er fyrir að hafa starfað á Tævan.
Stofan
Stofan er staðsett í Reykjavík, á Suðurlandsbraut 32, 4. hæð, innst á ganginum til vinstri. Gengið er inn á 4. hæðina úr lyftunni, áfram síðan til vinstri inn ganginn. Tveir stólar eru fyrir framan hurðina.